Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027

Emil Gautason, leikmaður ÍBV, og félagar hans í íslenska U17 ára landsliðinu í fótbolta tryggðu sér í dag sæti í næstu umferð undankeppni Evrópumótsins 2027 eftir frábæran árangur í Bosníu og Hersegóvínu. Ísland vann alla þrjá leiki sína í riðlinum og tryggði sér efsta sætið með glæsilegum 3-2 sigri á Grikklandi í dag. Þar áður […]

Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“

DSC_6266

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, gagnrýnir frestun á fundi þingmanna Suðurkjördæmis með bæjarstjórn vegna samgangna. Í færslu á Facebook bendir hún á að Eyjamenn þurfi sjálfir að gera ráð fyrir lengri siglingaleiðinni til Þorlákshafnar þegar ekki sé fært í Landeyjahöfn. „Annað árið í röð þarf að fresta fundi þingmanna Suðurkjördæmis með bæjarstjórn Vestmannaeyja vegna ölduhæðar í […]

Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans

Nú er búið að leggja lokahnd á gerð göngustígs að listaverki Ólafs Elíassonar, Sjónarhorn Flakkarans á nýja hrauninu í Vestmannaeyjum. Með tilkomu stígsins mun aðgengi að verkinu batna svo um munar. Halldór B. Halldórsson gerði sér ferð á staðinn og tók myndband af verkinu og nýja göngustígnum. Afraksturinn má sjá í spilaranum hér að neðan. […]

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis í dag, 29. september, þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Samkvæmt upplýsingunum sem Eyjafréttir hafa fengið verður farið frá Vestmannaeyjum kl. 16.00 og frá Þorlákshöfn kl. 19.45. Báðar brottfarir eru klukkustund fyrr en áður hafði verið áætlað. Ferðir kl. 14.30, 15.45, 18.15, 19.30, 22.00 og 23.15 […]

Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn

Sanddæluskipið Sebastiano Caboto fjarlægði um 32 þúsund rúmmetra af efni úr hafnarmynni Landeyjahafnar og framan við hafnargarðana dagana 26.–28. september. Skipið er á vegum dýpkunarfyrirtækisins Jan De Nul. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta. Að auki voru nokkur þúsund rúmmetrar af efni blásnir af grynningum með því að […]

Logn og bros á Stórhöfða

Fjölskylduganga um Stórhöfða markaði lok Íþróttaviku Evrópu í Vestmannaeyjum sunnudaginn 27. september. Vestmannaeyjabær bauð til göngunnar undir leiðsögn Eyrúnar Haraldsdóttur og lék veðrið við þátttakendur, með logni á einum vindasamasta stað landsins. Í frásögn á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að hópurinn hafi byrjað á að líta inn í fuglaskoðunarhúsið. Þar sást hvorki til lunda né […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.