Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, gagnrýnir frestun á fundi þingmanna Suðurkjördæmis með bæjarstjórn vegna samgangna. Í færslu á Facebook bendir hún á að Eyjamenn þurfi sjálfir að gera ráð fyrir lengri siglingaleiðinni til Þorlákshafnar þegar ekki sé fært í Landeyjahöfn.
„Annað árið í röð þarf að fresta fundi þingmanna Suðurkjördæmis með bæjarstjórn Vestmannaeyja vegna ölduhæðar í Landeyjahöfn,“ skrifar Íris.
Hún segir þessar aðstæður vera hluta af daglegum samgöngum íbúa og beinir skýrri ábendingu til þingmanna fyrir næstu kjördæmaviku: „Skipuleggið ferðina út frá „löngu leiðinni“ frá upphafi. Það er veruleikinn sem Eyjamenn búa við alla daga.“
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins greinir einnig frá frestuninni í færslu á Facebook. Þar segir hann að þingmenn hafi á fyrsta degi kjördæmaviku, á mánudag, fundað með sveitarstjórnarfulltrúum á Hornafirði, í Skaftárhreppi og Mýrdalshreppi. Hann hafi síðan haldið til Eyja seint um kvöldið.
„Þar sem veður- og ölduspá er fremur óhagstæð var fundi okkar þingmanna með bæjarstjórn í Eyjum frestað fram í október,“ skrifar Karl Gauti. Sjálfur kveðst hann nýta daginn í Eyjum til að hitta mann og annan.