Emil Gautason, leikmaður ÍBV, og félagar hans í íslenska U17 ára landsliðinu í fótbolta tryggðu sér í dag sæti í næstu umferð undankeppni Evrópumótsins 2027 eftir frábæran árangur í Bosníu og Hersegóvínu.
Ísland vann alla þrjá leiki sína í riðlinum og tryggði sér efsta sætið með glæsilegum 3-2 sigri á Grikklandi í dag. Þar áður hafði liðið unnið Gíbraltar, 4-0, og heimamenn í Bosníu og Hersegóvínu, 3-1.
Emil kom við sögu í fyrsta leiknum gegn Gíbraltar og lék þar í 45 mínútur þegar Ísland vann öruggan 4-0 sigur.
Ekki liggur enn fyrir hvaða þjóðum Ísland mætir í næstu umferð. Þar verður leikið í fjögurra liða riðlum þar sem eitt lið úr hverjum riðli tryggir sér sæti á lokamóti Evrópumótsins, sem fram fer í Lettlandi á næsta ári. Ísland og Bosnía voru fyrstu þjóðirnar til að tryggja sér sæti í næstu umferð.
Emil hefur átt afar gott tímabil með ÍBV og hefur skorað mikið með bæði 2. og 3. flokki félagsins. Hann átti einnig góða frammistöðu með U17 ára landsliðinu á þróunarmóti UEFA í sumar og hefur nú tekið þátt í því að tryggja Íslandi sæti í næstu umferð undankeppni EM 2027.