Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis í dag, 29. september, þar sem ófært er til Landeyjahafnar vegna veðurs og sjólags. Samkvæmt upplýsingunum sem Eyjafréttir hafa fengið verður farið frá Vestmannaeyjum kl. 16.00 og frá Þorlákshöfn kl. 19.45. Báðar brottfarir eru klukkustund fyrr en áður hafði verið áætlað.

Ferðir kl. 14.30, 15.45, 18.15, 19.30, 22.00 og 23.15 falla niður. Áður hafði Herjólfur tilkynnt að ferðir kl. 12.00 og 13.15 féllu niður.

Farþegar sem hyggjast nýta gistirými ferjunnar þurfa að koma með eigin búnað. Herjólfur minnir jafnframt á að hætta sé á færslu milli Landeyjahafnar og Þorlákshafnar á þessum árstíma og ráðleggur fólki að skilja ekki farartæki eftir í annarri hvorri höfninni.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.