Logn og bros á Stórhöfða
Frá fjölskyldugöngunni um Stórhöfða sem markaði lok Íþróttaviku Evrópu í Vestmannaeyjum. Veðrið lék við þátttakendur og allir luku göngunni með bros á vör. Ljósmynd/Vestmannaeyjabær.

Fjölskylduganga um Stórhöfða markaði lok Íþróttaviku Evrópu í Vestmannaeyjum sunnudaginn 27. september. Vestmannaeyjabær bauð til göngunnar undir leiðsögn Eyrúnar Haraldsdóttur og lék veðrið við þátttakendur, með logni á einum vindasamasta stað landsins.

Í frásögn á vef Vestmannaeyjabæjar kemur fram að hópurinn hafi byrjað á að líta inn í fuglaskoðunarhúsið. Þar sást hvorki til lunda né flækingsfugla. Að því loknu var gengið eftir slóða umhverfis höfðann og appelsínugulum stikum fylgt.

Börnin sýndu Stórhöfða, smáeyjunum í kring og öðru sem fyrir augu bar mikinn áhuga. Við húsið á Stórhöfða var tekin nestispása áður en síðasti spölurinn var genginn. Fram kemur í fréttinni að börnin hafi verið dugleg að drífa foreldra sína áfram og luku allir göngunni með bros á vör. Hér má sjá fleiri myndir úr höfðanum.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.