Eigum við ekki að vinna saman
�?ví er haldið fram, nú á síðustu dögum kosningabaráttunnar að Eyjalistinn sé of hliðhollur meirihlutanum og sé honum sammála í einu og öllu. Sumir ganga meira að segja svo langt að telja bæjarfulltrúum okkar þetta til ámælis, þeir séu í raun einungis leppir fyrir sjálfstæðismenn í bæjarstjórn. Í raun er ekkert óeðlilegt við að þurfa að takast á við slíka umræðu, sérstaklega þegar hún er runnin undan rifjum andstæðinga okkar sem berjast nú við að afla sér fylgis og fara stundum frjálslega með staðreyndir.
Við skulum halda því til haga, eins og ítrekað hefur verið bent á, að mörg mál sem samþykkt hafa verið í bæjarstjórn hafa komið að frumkvæði bæjarfulltrúa Eyjalistans. �?essi mál eru stór hagsmunamál fyrir bæjarbúa. Frístundakortið var lagt fram af bæjarfulltrúum Eyjalistans, dagvistunargjöld leikskólabarna voru lækkuð að frumkvæði bæjarfulltrúa Eyjalistans, uppbygging íbúða fyrir fatlaða í Ísfélagshúsinu og þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Hraunbúðir eru allt mál sem Eyjalistinn hefur haft ofarlega á sinni stefnu og við ætlum að halda þeirri hagsmunagæslu áfram.
Maður veltir því fyrir sér hvað átt er við þegar Eyjalistinn er sagður hafa verið í of miklu slagtogi við meirihlutann. Að hlusta á það að 7-0 atkvæðagreiðslur bendi til þess að bæjarfulltrúar okkar séu veikburða í slagnum við meirihlutann er út í hött!
* Áttum við að berjast gegn því að ungmenni undir 16 ára fái ókeypis aðgang að sundlauginni?
* Hefðum við átt að leggjast gegn því að bærinn niðurgreiði skólamáltíðir í grunnskólanum?
* Hefðum við betur unnið gegn því að nemendum væru tryggð námsgögn án endurgjalds?
* Áttu bæjarfulltrúar okkar að standa í vegi fyrir stórkostlegum umbótum í samgöngumálum með samningi um rekstur Herjólfs í stað þess að vinna sameiginlega að hagsmunum bæjarbúa?
* Er það virkilega krafa á bæjarfulltrúa sem starfa í minnihluta að þeir verði ávallt á móti góðum og þörfum málum?
�?g frábið mér slíkan málflutning. Ef þetta er stemningin sem ríkir í herbúðum H-listans þá er ekki von á góðu frá þeirra fólki í bæjarstjórn. Við höfum viljað og við ætlum áfram að vinna að öllum góðum málum er til framfara horfa fyrir bæjarfélagið. Við munum ekki fara í keppni það hver kemur fyrstur með góðar hugmyndir. Sjálfsdýrkun okkar er ekki á því stigi að við getum ekki sameinast um góð mál.
Njáll Ragnarsson

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.