Upplifun mín af samstarfi við Elliða Vignisson í bæjarstjórn er allt önnur en þessi sem fyrirsögnin segir. �?egar ég bauð mig fram til bæjarstjórnar árið 2006 þekkti ég Elliða ekkert. Í dag erum við góðir vinir. Frá upphafi var ég staðráðin í að hagsmunir samfélagsins réðu ávallt við ákvarðanatöku. �?g var varkár og gaf mér tíma til að kynnast Elliða og hans vinnubrögðum sem bæjarstjóra. Á níu árum í bæjarstjórn kynntist ég öllum hans hliðum og oft tókumst við á. Oft kom það fyrir að Elliði var í minnihluta í meirihlutanum. �?að bar hins vegar ekki á því þegar komið var á bæjarstjórnarfund. �?ar gekk hann jafnvel harðast fram í rökstuðningi ákvarðana sem hann sjálfur hafði verið á móti í upphafi. Hann virti niðurstöðu meirihlutans.
Vinnusemi
Allt hefst með vinnuframlagi og þekki ég engan vinnusamari en Elliða. Hann skilar löngum vinnudögum og er alltaf til viðtals. Íbúar, samstarfsfólk, ráðamenn og fjölmiðlar eiga greiðan aðgang að honum. �?á er alveg sama á hvaða tíma sólarhrings það er, hvort það er hátíð eða sumarfrí. Alltaf er hann tilbúinn að taka slaginn fyrir samfélagið og ég hef aldrei séð hann gera mannamun. �?egar umræðan er ósanngjörn varðandi Eyjarnar, fyrirtæki, félagasamtök eða hvað sem er, þá er hann mættur til að leiðrétta umræðuna, tala kjark í samfélagið og gefa rétta mynd. Hans einkunnarorð hafa verið allt fyrir Vestmannaeyjar og það skal engan undra að stundum hafi fólki fundist hann vera full djarfur í framgöngu sinni. Að hafa mann eins og Elliða í okkar liði er ómetanlegt.
Heilindi
Af öllum kostum kann ég mest að meta heilindi. Ákvarðanir hafa verið teknar með hagsmuni íbúa að leiðarljósi og geðþóttaákvarðanir ekki liðnar. �?rátt fyrir mikinn þrýsting á stjórnendur oft á tíðum, þá skiptir það engu máli hver á í hlut þegar kemur að úthlutun lóða, íbúða, þjónustukaupum, leikskólaplássum eða starfsumsóknum. Lög og reglur gilda jafnt um alla.
Samskipti
Samskiptafærni er mikilvægur kostur bæjarstjóra. Margoft hefur Elliði leitt erfið deilumál til lykta sem í upphafi gátu virst óleysanleg. Hann er óþreytandi að ganga á milli manna því hann veit að sameinuð erum við sterkari. �?essi mál varða allt frá skipulagsmálum við höfnina okkar til komu hljómsveita á þjóðhátíð.Við eigum okkur aðra óvini Vestmannaeyingar en hvort annað. �?eir sem fylgdust með síðasta bæjarstjórnarfundi þessa kjörtímabils sáu glöggt hve fulltrúar voru þakklátir fyrir sátt og gott samstarf á kjörtímabilinu. Um slíkan einhug var ekki að ræða árið 2006. Elliði lagði frá upphafi áherslu á gott samstarf. Hann hefur jafnframt lagt sig fram um að berjast fyrir hagsmunum okkar við ríkisvaldið og ég fullyrði að það gerir enginn betur. Líkt og hjá öðrum sveitarfélögum fer mikill tími bæjarstjóra í málaflokka ríkisins. Oft gríðarleg varnarbarátta en líka sigrar eins og fjölgun rýma á Hraunbúðum, háskólanám í Eyjum og nýr samningur um rekstur Herjólfs. Svona árangur dettur ekki af himnum ofan.
Kjarkur
�?að þarf framsýni, sjálfstraust og kjark til að gera breytingar og taka umdeildar ákvarðanir. �?ví ætti ekki að rugla við hroka. �?að er eðlilegt að ákvarðanir eins og sameining grunnskóla, einkarekstur leikskóla, stofnun 5 ára deildar, einföldun á stjórnkerfi bæjarins og sala hlutabréfa í Hitaveitu Suðurnesja séu umdeildar. Stuðningur bæjarstjórnar við ákvörðun ríkis um byggingu Landeyjahafnar
og nýlegur samningur um rekstur Herjólfs eru einnig dæmi um mikilvæg verkefni sem þurfti kjark til að leiða.
Ástæða þess að ég skrifa þessa grein er að mér finnst umræðan ósanngjörn og mér finnst hún ekki sönn. �?g fullyrði að við Eyjamenn gætum ekki átt betri málsvara en Elliða. Hann er ekki gallalaus og eflaust vilja ekki allir vera með honum í tjaldi, en þannig er lífið. Mig langar til að biðja ykkur um að íhuga vandlega hvort þið eruð tilbúin til að missa einn mesta baráttumann Eyjanna frá stjórnun bæjarins og missa þá framtíðarsýn sem við okkur blasir með hann við stjórnvölinn.
Páley Borgþórsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi.