Síðustu tvo sólarhringa hafa fjórir einstaklingar búsettir í Vestmannaeyjum greinst með staðfest smit af COVID-19. Eru því samtals 5 í einangrun og 27 í sóttkví og er von á að þeim fjölgi enn frekar þar sem smitrakningu er ekki lokið. Aðgerðastjórn beinir þeim tilmælum til einstaklinga með flensueinkenni að halda sig heima og hafa samband við heilsugæsluna til að meta þörf á sýnatöku.
Við þurfum öll að leggjast á eitt til að hefta frekari útbreiðslu í samfélaginu með því að gæta vel að sóttvörnum og fylgja fyrirmælum þar um.
Gangi ykkur vel.
F.h. aðgerðastjórnar,
Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjór
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst