Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra um stöðu eldsneytisbirgða fyrir flugflota Landhelgisgæslunnar utan höfuðborgarsvæðisins.
Eyjafréttir fjölluðu í gær um eldsneytisvanda í Vestmannaeyjum, þar sem eldsneyti fyrir þyrlur hefur verið útrunnið og óhæft til notkunar frá því í janúar.
Í fyrirspurninni óskar Karl Gauti eftir svörum við eftirfarandi atriðum:
Með fyrirspurninni er leitast við að varpa frekara ljósi á hvort tryggt sé aðgengi að eldsneyti fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar um land allt og hvort núverandi fyrirkomulag tryggi nægilegt öryggi í leitar- og björgunarstörfum. Sjá má hlekk á fyrri umfjöllun Eyjafrétta um málið hér að neðan.
Eldsneyti fyrir þyrlur Landhelgisgæslu Íslands í Vestmannaeyjum hefur verið óhæft til notkunar frá því í lok janúar, sem getur haft áhrif á viðbragðsgetu í leitar- og björgunaraðgerðum á svæðinu. Unnið er að lausn málsins, að sögn Ásgeirs Erlendssonar samskiptastjóra gæslunnar. Í samtali við Eyjafréttir staðfestir Ásgeir Erlendsson að eldsneytið sem er á tanki á Vestmannaeyjaflugvelli […]