Eldsneytisvandi í Eyjum
Eldsneyti fyrir þyrlur Landhelgisgæslunnar útrunnið frá janúar – getur haft áhrif á viðbragðsgetu
Þyrla Landhelgisgæslunnar við eldsneytistöku í Eyjum. Núverandi eldsneytisstaða getur haft áhrif á viðbragðsgetu. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Eldsneyti fyrir þyrlur Landhelgisgæslu Íslands í Vestmannaeyjum hefur verið óhæft til notkunar frá því í lok janúar, sem getur haft áhrif á viðbragðsgetu í leitar- og björgunaraðgerðum á svæðinu. Unnið er að lausn málsins, að sögn Ásgeirs Erlendssonar samskiptastjóra gæslunnar.

Í samtali við Eyjafréttir staðfestir Ásgeir Erlendsson að eldsneytið sem er á tanki á Vestmannaeyjaflugvelli sé útrunnið og því ekki heimilt að nota það. „Því þarf að skipta út fyrir nýtt,“ segir hann. Aðspurður um hversu lengi ástandið hafi varað segir hann að það hafi staðið yfir frá lokum janúar.

Þrátt fyrir að þyrlur Landhelgisgæslunnar séu hannaðar til að geta sinnt umfangsmiklum björgunaraðgerðum, þar á meðal flogið út í ystu mörk lögsögunnar og til baka með heila skipsáhöfn, getur skortur á aðgengi að eldsneyti í Vestmannaeyjum haft áhrif. Sérstaklega á það við um útköll suður af Eyjum eða þegar þyrlur eru þegar á flugi og þurfa að fylla á eldsneyti til að ljúka verkefni. Einnig getur þetta haft áhrif í lengri útköllum á Suðurlandi, til dæmis við leitaraðgerðir.

Samkvæmt Ásgeiri hefur verið reynt að flytja nýtt eldsneyti til Eyja. „Olíudreifing hefur leitast við að flytja eldsneytið með Herjólfi en undanfarið hefur það ekki reynst mögulegt. Unnið er að lausn málsins,“ segir hann.

Ábyrgð á birgðahaldi eldsneytis í Vestmannaeyjum liggur samkvæmt samkomulagi frá árinu 2023 hjá Olís, sem gerir það í samstarfi við Landhelgisgæsluna og Björgunarfélag Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.