Elliði - Betra að stjórna og bera þannig raunverulega ábyrgð
�??�?að er afstaða okkar í bæjarstjórn að rekstur Herjólfs sé ekki bara hluti af innrigerð samfélagsins heldur í raun horsteinn innrigerðarinnar. Í honum er fólgin grunnþjónusta í nærumhverfi bæjarbúa. Ítrekað hefur það gerst að ábyrgð á slíkum málaflokkum eru fluttir frá ríki til sveitarfélaga og þá gerist það ekki í gegnum útboð heldur í gegnum samninga milli þessara tveggja stjórnsýslustiga. Dugar þar að vísa til málefna fatlaðra, rekstur grunnskóla, rekstur heilsugæslu og margt fl. Með þessari samþykkt erum við að falast eftir því að taka þetta verkefni yfir á sama máta,�?? segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum um ósk bæjarstjórnar um að samið verði beint við hana um rekstur nýrra Vestmannaeyjaferju.
�??�?að er afstaða okkar hagsmuna bæjarbúa sé ekki nægilega vel gætt í dag. Með þessu er á engan veg máli hallað gagnvart núverandi rekstraraðila enda algerlega kýrskýrt að einkafyrirtæki er eingöngu ábyrgt fyrir því að framfylgja samning en ekki að gæta að samfélgagslegum hagsmunum. �?að er langtum frekar samningurinn sjálfur og eftirlit með honum sem við gagnrýnum. �?ar er hagsmunum okkar ekki nægilega vel gætt og kemur það til að mynda í ljós með hversu fáar ferðir eru sigldar á áætlunartímum, hversu há gjöld eru lögð á okkur í siglingum í �?orlákshöfn og svo margt fl.
Í viðbót við þetta þá hefur hvorki okkur né öðrum bæjarbúum dulist að bæjarstjórn er ítrekað gerð ábyrg fyrir þessum málaflokki og dregst ítrekað inn í umræðuna. �?að er hinsvegar vont að vera gerð ábyrg fyrir einhverju af bæjarbúum en hafa ekki nokkur tök á að hafa bein áhrif. �?á er hreinlega betra að stjórna og bera þannig raunverulega ábyrgð,�?? segir Elliði.

Nýjustu fréttir

Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.