Verkfall framhaldsskólakennara skall á í morgun og eins og í flestum öðrum framhaldsskólum landsins, fer engin kennsla fram í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum í dag. Um 240 nemendur eru við nám á vorönn í skólanum en þeir geta þó tekið daginn snemma, farið í skólann og lært þar sem skólinn er opinn og er bókasafn skólans opið fyrir þá sem vilja nýta sér það. En ætli það séu ekki fleiri sem kjósa að kúra aðeins fram eftir, allavega í dag.