Erlend skip landa kolmunna í Eyjum
Eros OPF 20250317 123024
Eros við bryggju í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

​Norska uppsjávarskipið Eros er nú við löndun í Eyjum. Að sögn Páls Scheving Ingvarssonar, verksmiðjustjóra FES er um að ræða 1700 tonna kolmunnafarm sem landað er hjá Ísfélaginu.

„Við erum að starta verksmiðjunni eftir töluverðar endurbætur og því gaman að sjá að hvernig þetta gengur,” segir hann. Þetta verður ekki eina erlenda skipið sem landar hjá Ísfélaginu í vikunni.

„Á morgun kemur skoska uppsjávarskipið Pathway inn til löndunar hjá okkur,” segir Páll, en í fyrra gekk Ísfélagið frá kaupum á þessu skipi. ,,Þeir eru með um 2000 tonna farm af kolmunna,” segir hann. ,,Við notum tækifærið og skoðum skipið auk þess sem að tveir úr væntanlegri áhöfn fara með skipinu næsta túr.”

Frétt Eyjafrétta um kaupin.

20250317 150109
Eros. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Nýjustu fréttir

Sara Dröfn snýr heim í ÍBV
Styrkleikarnir fóru fram í annað sinn
Evrópuhreyfingin: 105.339 Íslendingar sögðu já
Þjóðin hafnar því að hefja aðildarviðræður við ESB að nýju
Tæknin getur einfaldað námið til muna – fyrirlestur fyrir foreldra í Höllinni
Frábær sigur ÍBV á útivelli gegn Breiðablik
ÍBV í fallsæti eftir tap á heimavelli gegn Þór
Þór bjargaði fólki úr sjálfheldu í Reynisfjöru
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.