Eyjamaðurinn Erlingur Birgir Richardsson gat vart óskað sér betri byrjunar á nýju starfi hjá GWD Minden í þýsku B-deildinni í handbolta. Í sínum fyrsta leik við stjórnvölinn stýrði hann liðinu til 40-37 sigurs á Dessauer HV í fjörugum markaleik, í dag. Minden leiddi í hálfleik, 22-21.
Erlingur hafði aðeins fimm daga til að undirbúa liðið eftir að hann tók við starfi aðalþjálfara. Þrátt fyrir skamman undirbúning tókst honum að leiða Minden til mikilvægs sigurs.
Með sigrinum steig liðið upp úr neðri hluta deildarinnar í fyrsta sinn á tímabilinu. Minden situr nú í 9. sæti þýsku B-deildarinnar með fimm stig.
Næsti leikur Minden er gegn Ludwigshafen á útivelli, föstudaginn 9. október.