Erlingur til GWD Minden - Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Mynd/ÍBV

Erlingur Birgir Richardsson, einn af þjálfurum karlaliðs ÍBV, hefur verið ráðinn þjálfari þýska liðsins GWD Minden. Minden hefur virkjað kaupákvæði í samningi Erlings og tekur hann við liðinu þegar í stað. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.

Í tilkynningu handknattleiksdeildar segir: ,,Erlingur hefur starfað í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá ÍBV ásamt Sigurði Bragasyni og Bergvini Haraldssyni. Á þeim tíma hefur hann lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og árangurs liðsins og verið mikilvægur hluti af þjálfarateyminu.”

Handknattleiksdeild ÍBV kveðst afar þakklátt fyrir það góða starf sem Erlingur hefur unnið fyrir félagið í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í nýju og spennandi verkefni hjá GWD Minden.

GWD Minden situr í 13. sæti þýsku B-deildarinnar með þrjú stig eftir fimm leiki.

Bergvin tekur við sem aðalþjálfari

Í kjölfar brotthvarfs Erlings mun Bergvin Haraldsson taka við sem aðalþjálfari karlaliðs ÍBV. Sigurður Bragason verður honum til halds og trausts í þjálfarateyminu.

,,Bergvin hefur starfað sem yfirþjálfari hjá ÍBV auk þess að hafa komið að þjálfun yngri flokka félagsins. Hann mun áfram sinna þeim verkefnum samhliða starfi sínu sem aðalþjálfari meistaraflokks karla,” segir í tilkynningu ÍBV.

 

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.