Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi

Friðrik Páll Arnfinnsson, slökkviliðsstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sagt upp starfi sínu og lætur af störfum um áramót. Hann hefur stýrt liðinu undanfarin tíu ár en verið í slökkviliðinu í þrjá áratugi. Við tekur starf verkstjóra hjá HS Veitum. Í samtali við Eyjafréttir segir Friðrik Páll að honum hafi þótt kominn tími til að breyta til. […]

Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga

Herjólfur hvetur farþega sem hyggjast ferðast á morgun, þriðjudaginn 29. september, til að fara fyrr en seinna hafi þeir tök á. Samkvæmt ölduspá fer ölduhæð hækkandi fyrir hádegi og gæti það haft áhrif á siglingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Þar segir að verði breytingar á áætlun verði þær kynntar eins fljótt og […]

Skjöldur haldinn í þriðja sinn

Karlaráðstefnan Skjöldur verður haldin í þriðja sinn í Eyjum laugardaginn 17. október. Dagskráin hefst í Sagnheimum klukkan 14 og að þessu sinni koma fram Bergur Ebbi, Sveppi, og Jónas Sigurðsson. Bergur Ebbi mun fjalla um mennskuna á tímum gervigreindar og setja í samhengi við atriði úr sögu okkar samfélags. Sveppi verður með uppistand eins og […]

Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV

Erlingur Birgir Richardsson, einn af þjálfurum karlaliðs ÍBV, hefur verið ráðinn þjálfari þýska liðsins GWD Minden. Minden hefur virkjað kaupákvæði í samningi Erlings og tekur hann við liðinu þegar í stað. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum. Í tilkynningu handknattleiksdeildar segir: ,,Erlingur hefur starfað í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá ÍBV ásamt Sigurði Bragasyni og […]

Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu fögnuðu 3-0 sigri á Ísrael í B-deild Þjóðadeildarinnar í gærkvöld. Leikurinn fór fram í Debrecen í Ungverjalandi, þar sem Ísrael lék heimaleik sinn. Troy Parrott kom Írum yfir á 14. mínútu, Adam Idah bætti öðru marki við skömmu síðar og Jack Moylan skoraði það þriðja á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.