Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Heimir Hallgrímsson.

Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu fögnuðu 3-0 sigri á Ísrael í B-deild Þjóðadeildarinnar í gærkvöld. Leikurinn fór fram í Debrecen í Ungverjalandi, þar sem Ísrael lék heimaleik sinn.

Troy Parrott kom Írum yfir á 14. mínútu, Adam Idah bætti öðru marki við skömmu síðar og Jack Moylan skoraði það þriðja á 25. mínútu. Ekkert var skorað í síðari hálfleik og því urðu lokatölur 3-0 fyrir Írland.

Írar höfðu tapað 1–0 fyrir Kósóvó í fyrsta leik sínum og eru nú með þrjú stig eftir tvo leiki, líkt og Kósóvó. Austurríki er á toppi riðilsins með sex stig en Ísrael vermir botnsætið án stiga.

Mikil umræða var um leikinn áður en hann fór fram vegna andstöðu við þátttöku Ísraels í keppninni. Írski markvörðurinn Gavin Bazunu ákvað að taka ekki þátt í leiknum og ræddu leikmenn í kjölfarið sín á milli hvort þeir ættu að mæta til leiks. Þeir ákváðu að spila.

Írska liðið bar sorgarbönd í leiknum til minningar um þá sem hafa látið lífið í átökunum á Gaza. Leikmenn liðanna tókust ekki í hendur fyrir leik og írsku leikmennirnir hneigðu höfuð meðan þjóðsöngur Ísraels var leikinn.

Heimir hrósaði sínum mönnum fyrir frammistöðuna eftir leik og sagði erfiða daga oft leiða í ljós hverjir tækju forystu innan hópsins. Næsti leikur Íra er gegn Austurríki á fimmtudag.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.