Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Herjólfur hvetur farþega sem hyggjast ferðast á morgun, þriðjudaginn 29. september, til að fara fyrr en seinna hafi þeir tök á. Samkvæmt ölduspá fer ölduhæð hækkandi fyrir hádegi og gæti það haft áhrif á siglingar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Þar segir að verði breytingar á áætlun verði þær kynntar eins fljótt og hægt er.

Þá bendir spáin til þess að sigla þurfi til og frá Þorlákshöfn á miðvikudag og fimmtudag, 30. september og 1. október. Allar ferðir eru þó enn á áætlun og verða mögulegar breytingar tilkynntar um leið og þær liggja fyrir.

Farþegar eru jafnframt minntir á að á þessum árstíma sé alltaf hætta á færslu milli hafna. Því sé ekki æskilegt að skilja ökutæki eftir í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.

Nýjustu fréttir

Ítalía mun alltaf eiga sérstakan stað í hjartanu
Vestmannaeyjabær óskar eftir niðurstöðum úr PISA
Sæðisprufan hans Sigurgeirs vakti mikla kátínu
Ólöf Ragnarsdóttir, fréttakona á RÚV 
Hekla bætti eigið met og varð efst kvenna
Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.