Ester Óskarsdóttir er íþróttamaður ársins 2018

Ester Óskarsdóttir leikmaður ÍBV í handbolta var útnefnd Íþróttamaður Vestmannaeyja 2018 og Sigurður Arnar Magnússon, knattspyrnumaður Íþróttamaður æskunnar 2018.

Þetta var tilkynnt á fjölmennri uppskeruhátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja í Akóges í gærkvöldi þar sem leikmenn og velunnarar félagsins voru samankomnir. Tilkynnt var um íþróttamann hvers aðildarfélags og Heiðursmerki afhent.

Fimleikafélagið Rán tilnefndi Sigrúnu Gígju Sigurjónsdóttur sem fimleikamann ársins. Golfari ársins var valinn Daníel Ingi Sigurjónsson.

Hjá ÍBV-íþróttafélagi voru það Ester Óskarsdóttir og Sigurbergur Sveinsson sem voru tilnefnd hjá handboltanum en Cloé Lacasse og David Atkinsson hjá fótboltanum.

KFS tilnefni þá Egil Jóhannsson sem knattspyrnumann ársins í sínum röðum. Íþróttafélagið Ægir valdi Anton Sigurðsson, Karatefélag Vestmannaeyja valdi Hermann Inga Ágústsson, Sundfélagið Súsönnu Sig Sigfúsdóttur og Tennis- og badmintonfélagið Eyþór Harðarson. Blakfélag ÍBV, Körfuknattleiksfélag ÍBV og Ungmennafélagið Óðinn tilnefndu engann úr sínum röðum að þessu sinni.

Þá var Arnari Péturssyni sem gerði ÍBV að þreföldum meisturum í meistaraflokki karla í handbolta á síðasta ári, veitt sérstök heiðursverðlaun.

Meistaraflokkur karla í handbolta fengu sérstaka viðurkenningu fyrir frábæran árangur og var þeim afhent Starfsmerki ÍBV.

Nýjustu fréttir

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Aglow samvera í kvöld
Ísfélagið komið með tvo þriðju af loðnukvótanum
„Loðna með suðurströndinni og henni fylgir mikill fjöldi hvala”
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.