ÍBV gerði markalaust jafntefli í kvöld gegn Rauðu stjörnunni og eru Eyjamenn því úr leik. Serbarnir unnu samanlagt 2-0. ÍBV voru manni fleiri síðasta korterið og klúðruðu vítaspyrnu. Stemmninginn á leiknum var mjög góð og eiga áhorfendur hrós skilið fyrir að gera góðan leik enn betri. Leikmenn ÍBV geta líka borið höfuðið hátt enda stóðu þeir vel í sterku atvinnumannaliði.