Eyjafiskur í aðalhlutverki á jólaborðum Portúgala
Porto IMG 20251101 WA0005
Til að tryggja gæði og faglega framsetningu vörunnar fengu stjórnendur og starfsfólk Auchan ítarlega fræðslu um fiskinn, uppruna hans og verkun. Þannig er tryggt að neytendur fái réttar upplýsingar og skilji hvað gerir íslenskan saltfisk svo eftirsóknarverðan. Mynd/vsv.is

Saltfiskurinn gegnir lykilhlutverki í jólahaldinu í Portúgal, þar sem eftirspurnin eykst verulega þegar hátíðin nálgast. Hjá fyrirtækinu Grupeixe, dótturfyrirtæki Vinnslustöðvarinnar, stendur nú yfir annasamasti tími ársins við framleiðslu og kynningu á úrvals jólasaltfiski sem ber heitið Bacalhau Especial – Cura superior 9 meses.

Fiskurinn, sem byggir á íslensku hráefni, hefur verið látinn þroskast í salti í níu mánuði áður en hann er þurrkaður og pakkaður. Með þeirri meðferð fær hann ríkara bragð og áferð sem portúgalskir neytendur kunna vel að meta. Varan er markaðssett undir yfirskriftinni A obra-prima do AtlânticoMeistaraverk Atlantshafsins – og seld í takmörkuðu magni í 36 verslunum Auchan víðs vegar um landið.

Í umfjöllun sem birtist á vef Vinnslustöðvarinnar (vsv.is) segir frá verkefninu, samstarfi Grupeixe við smásölukeðjuna Auchan og þeirri áherslu sem lögð er á gæði, uppruna og íslenskan fisk sem lykilhráefni. Framkvæmdastjóri Grupeixe, Nuno Araújo, segir að íslenskur fiskur sé hjarta starfseminnar og að verkefnið undirstriki mikilvægi þess að miðla gæðum og sögu vörunnar til neytenda.

Lesa má ítarlegu umfjöllunina í heild sinni hér.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.