Eyjafréttir koma út í kvöld, miðvikudagskvöld og verður blaðinu dreift til áskrifenda og í verslanir í Eyjum uppúr klukkan 20.00. Blaðið fer á póstmiðstöðina í Reykjavík um miðjan dag í dag og ætti blaðið að berast áskrifendum á fastalandinum á föstudaginn, þar sem frídagur er á morgun. Eyjafréttir eru í stærri kantinum í dag, 40 blaðsíður og efni blaðsins m.a. helgað sjómannadeginum og sjómannskonum. �?á er Sumarstúlkukeppninni um síðustu helgi gerð skil, rætt við forystufólk listanna sem bjóða fram til bæjarstjórnarkosninganna um næstu helgi, opnun Eldheima í máli og myndum – ásamt öðru fjölbreyttu efni.