Eyjamenn gerðu jafntefli við ÍR á útivelli
Úr leik ÍBV gegn KA. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson

Karlalið ÍBV í handbolta og botnlið ÍR mættust í níundu umferð Olís deildar karla í Skógarseli í kvöld. Leiknum lauk með 36:36 jafntefli. Fyrri hálfleikurinn var jafn og skiptust liðin á að leiða. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í fyrri hálfleik, Nathan Doku Helgi Asare og Nökkvi Blær Hafþórsson leikmenn ÍR og Ísak Rafnsson leikmaður ÍBV. Eyjamenn fóru með eins marks forystu inn í hálfleikinn, 18:19.

Seinni hálfleikur spilaðist á svipaðan hátt og sá fyrri en ÍR komust þremur mörkum yfir, 30:27, þegar stundarfjórðungur var eftir. Eyjamenn voru einu marki yfir þegar tvær mínútur voru til leiksloka en ÍR náði að jafna leikinn undir lokin. Lokatölur 36:36.  Eftir níu umferðir eru Eyjamenn í 3. sæti með 11 stig. ÍR sitja í neðsta sæti með 2 stig.

Baldur Fritz Bjarnason leikmaður ÍR var markahæstur í leiknum með 13 mörk. Andri Erlingsson og Sveinn José Rivera voru markahæstir í liði ÍBV með 7 mörk hvor. Morgan Goði Garner varði 6 skot í marki Eyjamanna.

Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 7 mörk, Sveinn José Rivera 7, Dagur Arnarsson 5, Gabríel Martinez Róbertsson 5, Egill Oddgeir Stefánsson 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2, Róbert Sigurðsson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 2, Anton Frans Sigurðsson 1, Haukur Leó Magnússon 1, Ísak Rafnsson 1.

 

Nýjustu fréttir

Herjólfur fækkar ferðum í dag
Erlingur með tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum með Minden
Gul viðvörun á Suðurlandi í kvöld
Bæjarráð krefst sjálfstæðs lögregluembættis í Eyjum
Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.