Eyjarnar landa annan hvern dag
„Nú er stuð á þessu. Vestmannaey og Bergey hafa landað fullfermi annan hvern dag að undanförnu. Þær hafa landað fjórum sinnum undanfarna viku og eru að landa í dag. Þetta gerist vart betra og nú er hægt að tala um alvöru vertíð,“ segir Arnar Richardsson rekstrarstjóri Bergs-Hugins í Vestmannaeyjum.
Bergey kom til löndunar í morgun og spurði heimasíða Síldarvinnslunnar Jón Valgeirsson skipstjóra hvort nú væri ekki hafin alvöru vertíð. „Jú, nú ríkir alvöru vertíðarbragur hérna en hann hófst heldur seinna en undanfarin ár. Það er góð veiði bæði austan og vestan við Eyjar. Við höfum verið á Selvogsbankanum, Pétursey og sunnan við Surt og það er alls staðar glimrandi góður fiskur. Það er til dæmis hægt að velja þá stærð sem menn vilja fá af þorski eftir því hvar er veitt. Þú getur valið frá millistærð og upp í algjörar beljur. Það er auðvelt að ná í fisk núna. Ég held að þetta sé níunda löndunin hjá okkur það sem af er mánuðinum og við höfum alltaf verið með fullt skip. Þetta er veisla. Við munum halda til veiða á ný annað kvöld,“ segir Jón.
Vestmannaey mun einnig landa í Eyjum í dag.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.