Eyjaskip í vísindaleiðangri umhverfis Ísland
Starfsfólk í haustralli fékk þessa glæsilegu boli í tilefni af 30. haustrallinu. Efsta mynd er áhöfn og rannsóknafólki á Þórunni, því næst má sjá áhöfn og rannsóknafólk á Árna og neðsta hópmyndin er af áhöfn og rannsóknafólki á Breka. Ljósmyndir/hafogvatn.is

Togararnir Þórunn Sveinsdóttir VE og Breki VE frá Vinnslustöðinni voru meðal skipa sem tóku þátt í þrítugustu stofnmælingu botnfiska að haustlagi, svokölluðu haustralli, sem lauk 17. október síðastliðinn. Auk þeirra sigldi rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF, og tóku alls um 80 starfsmenn þátt í verkefninu.

Í frétt á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar kemur fram að skipstjórar hafi verið þeir Heimir Hafsteinsson á Árna Friðrikssyni HF, Sigurjón Viðarsson og Óskar Þór Kristjánsson á Þórunni Sveinsdóttur VE og Magnús Ríkarðsson á Breka VE. Í ár var togað á 372 stöðvum víðsvegar um landið. Stöðvarnar ná yfir allt landgrunnið og niður á landgrunnsbrúnina, allt að 1.300 metra dýpi.

Framkvæmt með sama hætti í 30 ár

Haustrall hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti frá árinu 1996. Helsta markmið verkefnisins er að styrkja mat á stofnstærð helstu botnlægra nytjastofna, með sérstakri áherslu á grálúðu og djúpkarfa. Þá er einnig safnað upplýsingum um útbreiðslu, líffræði og fæðu helstu fisktegunda við Ísland.

Auk líffræðilegra gagna eru skráðir ýmsir umhverfisþættir, svo sem sjávarhiti við botn og yfirborð og veðurfar. Þá hefur botndýrum verið safnað í nokkur ár og frá árinu 2017 hefur einnig verið skráð rusl og plastrusl í afla á skipulagan hátt.

Gagnasöfnun í haustralli hefur á þessum 30 árum orðið veigamikill þáttur í langtímavöktun lífríkis á íslensku hafsvæði, og hafa fjölmargar vísindagreinar, skýrslur og nemaverkefni byggt á þessum gögnum. Helstu niðurstöður úr haustrallinu verða kynntar í desember, segir að endingu í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.