�??�?g ákvað að sofna með medalíuna í gær bara til þess að þegar ég vaknaði þá vissi ég að þetta væri satt. �?g vaknaði því með medalíuna í morgun og hugsaði: �?etta er ekki draumur,�?? segir Agnar Smári Jónsson, hetja fyrsta Íslandsmeistaraliðs ÍBV. Áður en hann lagðist á koddann var hann þó ásamt liðsfélögum sínum búinn að fá magnaðar móttökur í Vestmannaeyjahöfn.
�??�?að var flugeldasýning, rauðu blysin eins og á �?jóðhátíð og 700 manns á bryggjunni klukkan hálf tvö á fimmtudegi. �?etta var ólýsanlegt,�?? rifjar Agnar upp en hann skoraði þrettán mörk á móti Haukum, þar á meðal sigurmarkið sem sendi alla Eyjamenn upp í sjöunda himin.
Agnar Smári gerði gott betur en að tryggja ÍBV titilinn því hann jafnaði um leið markamet Sigurðar Vals Sveinssonar. �?eir tveir eru nú þeir einu sem hafa náð að skora tólf mörk utan af velli í einum leik í lokaúrslitum karla. Agnar er að gera þetta aðeins tvítugur og í sinni fyrstu úrslitakeppni.
Stóra spurningin er samt hvernig datt Valsmönnum í hug að láta þennan strák fara síðasta haust? �??�?g hef ekki hugmynd. �?eir fengu Geir Guðmundsson til sín og mér leist ekki á það því ég vildi fá stærra hlutverk. �?eir sögðu mér að ég myndi fá stórt hlutverk í 2. flokki en ég vildi það ekki. �?að er náttúrulega bara hneisa og ég sé aldrei eftir þessu,�?? sagði Agnar en hann segir Valsmenn ekki þekkja sig nógu vel.
Elskar svona aðstæður
�??�?eir héldu vídeófund fyrir oddaleikinn á móti okkur og þar var sagt að ég myndi verða stressaður. �?g elska hins vegar svona aðstæður og ég þrífst á stemmingu. Maður verður líka ekkert stressaður því þessi stemming er úti í Eyjum líka,�?? segir Agnar.
Hann skoraði úr átta fyrstu skotunum sínum og var með tíu af fyrstu sautján mörkum Eyjaliðsins fyrir framan troðfullt hús.
�??�?að er rosalega gott að ná fyrstu þremur skotunum inn því það gefur manni mikið sjálfstraust. Maður hættir ekkert að skjóta þegar maður er heitur,�?? segir Agnar léttur. Reyndar var þetta hálfgert einvígi á milli Agnars og Haukamannsins Sigurbergs Sveinssonar.
�??�?að er ömurlegt náttúrulega fyrir Sigurberg að vera með tólf mörk en samt ekki markahæstur,�?? segir Agnar í smá stríðnistón. Hann hrósar þjálfurunum Gunnari Magnússyni og Arnari Péturssyni. �??Gunni er frábær og ótrúlegur maður. Hann á endalaust hrós skilið og Arnar Péturs líka. �?etta er magnað kombó og þeir eru rosalega flottir saman og arkitektar að þessu öllu,�?? segir Agnar, sem verður áfram í Eyjum.
�??Við verðum að sjá til hvernig næsta tímabil verður. �?etta er náttúrulega öskubuskuævintýri hérna. Við missum náttúrulega Róbert (Aron Hostert), sem er Zlatan íslenska handboltans því hann fer í lið og vinnur titla. Vonandi fáum við sterkan mann í hans stað,�?? segir Agnar en Róbert Aron varð einnig Íslandsmeistari með Fram í fyrra.
Faðmaður og kysstur
�??Við strákarnir erum mögnuð liðsheild og Vestmannaeyjabær allur. Núna er bara lítil �?jóðhátíð. �?essa dagana er maður faðmaður og kysstur við hvert tækifæri. �?g held að það sé ekki hægt að vinna þetta á betri stað. �?að er allt sumarið og �?jóðhátíðin eftir. Fyrsta helgin í ágúst, hversu geggjað verður það. �?g held ég verði heimamaður í hverju einasta hvíta tjaldi,�?? sagði Agnar að lokum.
Viðtalið birtist á visir.is