Tekinn hefur verið upp nýr háttur í fundargerðum ráða á vegum bæjarins þar sem tekið er fram hver er formaður og hverjir eru aðalmenn, hverjir varamenn og hverjir eru starfsmenn bæjarins. �?að er svo sem ekkert við þetta að athuga en að skrifa öll starfs- og embættisheiti með upphafsstaf er svolítið sérstakt og er rangt samkvæmt íslenskri stafsetningu.
�?annig er hausinn á fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs í síðustu viku: Margrét Rós Ingólfsdóttir Formaður, Hörður �?skarsson Aðalmaður, Esther Bergsdóttir Aðalmaður, Kristinn Bjarki Valgeirsson Aðalmaður, Jóhanna Ýr Jónsdóttir Aðalmaður, Sigurður Smári Benónýsson Starfsmaður sviðs og �?lafur �?ór Snorrason Framkvstj. sviðs.
Ekki skal gert lítið úr mikilvægi þessara starfa en eigum við ekki að halda okkur við það sem rétt er?