ÍBV stelpur töpuðu fyrir Breiðablik í kvöld

ÍBV stelpur lágu fyrir Breiðabliksstúlkum í níundu umferð Pepsídeildar kvenna í kvöld. Leikurinn endaði 4-2. Og það var Eyjastelpan Fanndís Friðriksdóttir sem kom sá og skoraði 3 mörk í leiknum. Tveir nýir leik­menn voru á vara­manna­bekk ÍBV í dag, þær Ari­ana Calderon og Natasha Anasi. Sú síðar­nefnda kom inná í hálfleik og var ekki lengi […]

Síldarvinnslan áfrýjar til Hæstaréttar

Nú fyrir skömmu barst Vestmannaeyjabæ áfrýjunarstefna Síldarvinnslunnar í máli því sem Vestmannaeyjabær höfðaði gegn félaginu til efnda á forkaupsrétti sveitarfélagsins þegar bátar og aflaheimildir voru seldar frá Vestmannaeyjum 30. ágúst 2012. Eins og komið hefur fram vann Vestmannaeyjabær fullnaðarsigur í héraðsdómi og voru dómsorðin afdráttarlaus. Í dómsniðurstöðu komst dómarinn m.a. að þeirri niðurstöðu að kaupsamningur […]

Hátt í 300 manns á vöktum allan sólarhringinn

Makrílvertíðin í ár ætlar að standa undir nafni þrátt fyrir að veður hafi sett strik í reikninginn. �?að hefur brugðið til betri tíðar síðustu daga og hafa veiðar og vinnsla gengið vel. Stutt er á miðin sem kemur sér vel fyrir vinnsluna í landi. Hjá Ísfélaginu, Vinnslustöðinni og Godthaab vinna hátt í 300 manns á […]

Ný uppganga á Heimaklett í vinnslu

Pétur Steingrímsson, áhugamaður um Heimaklett skrifar á faceboosíðu sína að Daddi tæknifræðingur hjá Vestmannaeyjabæ, Vatnsdælingur, pípari og Fífilgötuvillingur hafi farið með honum og Svavari Steingrímssyni á Heimaklett. Mældi Daddi leiðina frá neðri stiganum og upp að þeim efri með mjög svo sérstöku mælitæki. Síðan skrifar Pétur: �??Daddi ætlar að teikna upp og hanna uppgönguna á […]

Farið á svig við stafsetningareglur

Tekinn hefur verið upp nýr háttur í fundargerðum ráða á vegum bæjarins þar sem tekið er fram hver er formaður og hverjir eru aðalmenn, hverjir varamenn og hverjir eru starfsmenn bæjarins. �?að er svo sem ekkert við þetta að athuga en að skrifa öll starfs- og embættisheiti með upphafsstaf er svolítið sérstakt og er rangt […]

Heimsigling Sigurðar VE gengur vel

TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar sem nú er staðsett við Miðjarðarhaf flaug í dag yfir Sigurð VE, nýtt skip Ísfélagsins sem er á leið til landsins frá Tyrklandi þar sem skipið hefur verið í smíðum. Áhöfn TF-SIF tók mynd af skipinu úr eftirlitsbúnaði flugvélarinnar og var hún að sjálfsögðu send til Ísfélagsins. Verkefni TF-SIF felst í eftirliti […]

Kvennalið ÍBV einnig í Evrópukeppnina

Eyjakonur taka þátt í EHF-bikarnum í handbolta á næstu leiktíð en Framkonur leika í Áskorendabikarnum. Bæði íslensku liðin eru í efri styrkleikaflokki en Valur afþakkaði sæti sitt í Evrópukeppni þetta árið. Eins og hjá körlunum verður dregið næsta þriðjudag en ÍBV getur lent á móti eftirtöldum liðum og sjá glöggir menn að nokkur lið eru […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.