Heimsigling Sigurðar VE gengur vel
TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar sem nú er staðsett við Miðjarðarhaf flaug í dag yfir Sigurð VE, nýtt skip Ísfélagsins sem er á leið til landsins frá Tyrklandi þar sem skipið hefur verið í smíðum.
Áhöfn TF-SIF tók mynd af skipinu úr eftirlitsbúnaði flugvélarinnar og var hún að sjálfsögðu send til Ísfélagsins.
Verkefni TF-SIF felst í eftirliti fyrir landamæraeftirlitsstofnun Evrópusambandsins, Frontex og fer flugvélin daglega í eftirlitsflug þar sem fylgst er með umferð skipa og báta á svæðinu. Fjórir eru í áhöfn flugvélarinnar auk flugvirkja. Einnig er einn starfsmaður Landhelgisgæslunnar staðsettur í stjórnstöð Frontex í Róm.
(frétt á vef Landhelgisgæslunnar)

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.