Ný uppganga á Heimaklett í vinnslu
Pétur Steingrímsson, áhugamaður um Heimaklett skrifar á faceboosíðu sína að Daddi tæknifræðingur hjá Vestmannaeyjabæ, Vatnsdælingur, pípari og Fífilgötuvillingur hafi farið með honum og Svavari Steingrímssyni á Heimaklett. Mældi Daddi leiðina frá neðri stiganum og upp að þeim efri með mjög svo sérstöku mælitæki. Síðan skrifar Pétur: �??Daddi ætlar að teikna upp og hanna uppgönguna á þessum kafla, eflaust verða smíðaðar einhvers konar tröppur þarna úr gegnumvörðu efni þannig að sandurinn í brekkunni hætti að skríða niður með hverjum gestinum sem fer þarna um. �?að verður spennandi og gaman að sjá hvað kemur út úr öllu þessu brölti okkar þarna í morgun. Einnig stikuðum við leiðina frá neðri stiga og alla leið upp á Hettu með skemmtilega lituðum stikum og vonandi fá þær að vera í friði þarna og verði fólki til gagns.�??

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.