Fengu gám í trollið
bergey_bergur_op
Myndin er tekin um borð í Berg VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Í morgun fékk ísfisk­tog­ari­nn Berg­ur VE hluta af gám frá Eim­skip í trollið hjá sér. Fréttavefur Morgunblaðsins greindi fyrst frá. Í sam­tali við mbl.is er haft eftir Jóni Val­geirs­syni, skip­stjóra skips­ins, að gám­ur­inn hafi komið í trollið þegar þeir voru að toga upp botn­vörpu af Pét­urs­ey.

Fimmtán gámar féllu útbyrðis af Dettifossi, flutningaskipi Eimskip, aðfaranótt 21. mars, austan við Vestmannaeyjar, þegar Dettifoss var að sigla frá Reykjavík til Reyðarfjarðar. Frá þessu var greint á DV.is á sínum tíma.

Misstu fimmtán gáma í sjóinn austan við Eyjar – Eyjafréttir (eyjafrettir.is)

Ennfremur var Jón spurður hvort að gám­ur­inn sem þeir fengu í trollið í morg­un sé frá þessu at­viki og svarar hann því til að það sé afar ólík­legt en að hann geti ekki úti­lokað það.

„Ég hélt að það hefði verið mikið aust­ar, en ég veit það ekki. Það er svo­lítið skrýtið að fá upp gám þarna, þetta er á allt öðrum stað. Þetta er svo­lítið eins og þeir hafi misst ann­an gám og ekki látið vita,“ seg­ir Jón.

Nánar má lesa um þetta hér.

Nýjustu fréttir

Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi 
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.