Það var fleiru smalað en bara sauðfé á Ströndum á laugardag heldur rataði þangað einnig umtalsvert fé frá Lottóinu. Óvenju gestkvæmt var hjá heppinni konu á besta aldri á Hólmavík vegna smölunar, börn og barnabörn í húsi og varð uppi fótur og fit á heimilinu þegar ljóst var að hún hafði unnið óskiptan fyrsta vinning, um níu milljónir króna. En bæði aðdragandinn og eftirleikurinn voru með skrautlegra lagi.
Þetta byrjaði reyndar allt samkvæmt vana þegar konan keypti miðann sinn í Krambúðinni en hún hefur verið fastheldin á hefðirnar gegnum árin og alltaf farið á sölustað og spilað með sömu tölurnar, sem eru afmælisdagar, brúðkaupsdagar og fleira sem tengist fjölskyldunni. Það fór því vel á því að svona margir fjölskyldumeðlimir væru á staðnum með konan fylgdist með útdrættinum á RÚV samkvæmt vana. Okkar konu varð þó um og ó þegar réttu tölurnar byrjuðu að birtast á skjánum og urðu taugarnar svo þandar að hún slökkti á sjónvarpinu áður en síðasta talan var dregin út!
Tók þá við nær óbærileg bið þar til sonur hennar gat fengið staðfestar upplýsingar um lokatölurnar á lotto.is og brutust út mikil fagnaðarlæti hjá stórfjölskyldunni þegar ljóst var að stóri vinningurinn kæmi allur á Hólmavík. „Hvað ætlarðu að gera við peninginn sem Lottóið gaf þér“ spurði eitt barnabarnið breytti Frúnni í Hamborg þannig í Frúna á Hólmavík og uppskar hlátur viðstaddra.
Þegar fólk hafði áttað sig á góðu fréttunum tók við mikil reikistefna meðal viðstaddra um hvernig skyldi varðveita vinningsmiðann þannig að hann mundi örugglega ekki týnast. Hafði hver sína hugmynd en á endanum varð sú frumlega lausn ofan á að losa rafhlöðuna úr fartölvu sonarins og koma miðanum dýrmæta fyrir þar á á bak við og festa á ný. Syninum var síðan falið að koma þessari lukkutölvu til höfuðstöðva Íslenskrar getspár á mánudeginum og rækti hann það hlutverk með sóma, þótt móðirin hafi reyndar séð ástæðu til að hringja tvisvar þann morguninn til að tryggja að allt væri á áætlun. Það má því segja að það hafi tekist vel að smala fé til Hólmavíkur þessa réttarhelgina. Þess ber þó geta að Íslensk getspá mælir ekki með því að vinningsmiðar séu almennt geymdir í rafhlöðuhólfi fartölva þótt allt hafi farið að óskum í þetta sinn.
Þetta segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Þar er vinningshafanum jafnframt óskað innilega til hamingju og um leið þakkað fyrir veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.
Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst