Herjólfur ohf. hefur birt áætlun fyrir mánudaginn 5. október. Gert er ráð fyrir fimm ferðum frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar og fimm ferðum til baka. Dýpkun í höfninni er að hefjast, en dýpið er enn ekki nægilegt, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins.
Brottfarir frá Vestmannaeyjum: 07:00, 09:30, 12:00, 17:00 og 19:30.
Brottfarir frá Landeyjahöfn: 08:15, 10:45, 13:15, 18:15 og 20:45.
Ferðir klukkan 14:30, 15:45, 22:00 og 23:15 falla niður. Horfur fyrir siglingar um Landeyjahöfn á mánudag eru góðar samkvæmt tilkynningunni.
Áætlun fyrir þriðjudaginn 6. október liggur ekki fyrir. Herjólfur ohf. hyggst birta tilkynningu um siglingar þess dags á mánudag.