Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti í gær ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir mótvægisaðgerðum í sveitarfélaginu, til að mæta áhrifum af kvótaniðurskurði og aflabresti í loðnu. Meðal þess sem bæjarstjórnin leggur til er að uppsjávarsvið Hafrannsóknarstofnunar verði flutt til Neskaupstaðar. Þá verði rannsóknir Matís í samvinnu við sjávarútvegsfyrirtækin efldar og starfsemi Fiskistofu í sveitarfélaginu styrkt. Jafnframt verði kannað hvort hagkvæmt er að gera hafrannsóknaskip út frá Fjarðabyggð.