Gert er ráð fyrir alls 164 milljóna halla á samstæðunni og er þá ekki gert ráð fyrir neinum framkvæmdum. �?að er því ljóst að ekki verður ráðist í neinar framkvæmdir á vegum bæjarins á næsta ári, nema fyrir lánsfé.�?á heldur skuldastaða bæjarins áfram að versna. �?annig eru tekin ný lán uppá tæplega 340 milljónir á meðan afborganir af eldri lánum eru sléttar 310 milljónir. Skuldir bæjarins eru þannig að hækka og ef einhverjar framkvæmdir verða á árinu hækka skuldirnar væntanlega enn meira sem því nemur.
Síðustu misseri hefur farið fram mikil vinna við að koma böndum á rekstur bæjarins. �?ær aðgerðir hafa verið sársaukafullar, en nauðsynlegar þar sem fjárhagsstaða bæjarins var orðin slík eftir 13 ára valdatíma Sjálfstæðismanna að Eftirlitsnefnd sveitarfélaganna var að því komin að taka yfir rekstur bæjarins. �?annig gerði fjárhagsáætlun ársins 2006 ráð fyrir að skuldir bæjarins yrðu greiddar niður um rúmar 60 milljónir króna.
Með þeirri fjárhagsáætlun sem nú hefur verið lögð fram virðist snúið af braut ábyrgrar fjármálastjórnar. Áframhaldandi hallarekstur og skuldasöfnun eru staðreynd og reynt að breiða yfir með tali um nýyrðið �?mannúðleg rekstrargildi�? og fjölskyldurekstur. �?essi gildi voru Elliða Vignissyni og Arnari Sigurmundssyni svo sannarlega ekki ofarlega í huga þegar þeir lögðu fram tillögur um hagræðingu í rekstri í september í fyrra. �?essi gildi voru þeim heldur ekki ofarlega í huga þegar þeir sögðu upp starfsmönnum í áhaldahúsinu og gerðu fleiri breytingar á starfskjörum almennra starfsmanna í nafni hagræðingar.
Fjölskyldureksturinn var þeim hins vegar ofarlega í huga, nú þegar kom að því að standa við uppsögn rekstrarstjóra Hraunbúða. �?á var bærinn aftur orðinn að því fjölskyldufyrirtæki sem hann hefur ávalt verið undir stjórn Sjálfstæðismanna. Sú staðreynd að rekstrarstjórinn er í innsta hring flokkseigendafélags D-listans í Eyjum og hefur gegnt fyrir hann ótal trúnaðarstörfum í gegnum tíðina hefur að sjálfsögðu ekki haft áhrif á þessa ákvörðun. Nei, fjölskyldupólitík D-listans er ekki rekin á neinum flokkspólitískum nótum.
Eftir að hafa hælt flokksbróður sínum, Sturlu Böðvarssyni, fyrir að ætla loksins að koma sér að því að taka ákvarðanir um framtíðarsamgöngur við Vestmannaeyjar, sem við höfum beðið eftir um árabil, gat bæjarstjóri samt ekki á sér setið að hnýta í heilbrigðis- og tryggingaráðherra í næsta orði. Hann segir þar að �?�?samkvæmt lögum er það ríkið sem ber ábyrgð á málefnum aldraðra. �?að ber að veita fé til þessa málaflokks í samræmi við þarfir hverju sinni og ótækt að sveitarfélög þurfi að hlaupa undir bagga.�?
En staðreyndin er sú að fjárframlög ríkisins til Hraunbúða árið 2007 hækka um tæp 25%, eða tæplega 50 milljónir og um tæp 50%, eða 70 milljónir frá árinu 2005. �?að er skiljanlegt að bæjarstjóri vilji verja �?fjölskylduna�?, enda á hann allt sitt undir henni. Hins vegar er ódýrt að ætla að skella skuldinni á ríkisvaldið, sem virðist hafa teygt sig ansi langt á síðustu misserum við að rétta af slæman rekstur Hraunbúða.
�?ví miður virðist �?nýr�? meirihluti D-listans við sama heygarðshornið og greinilegt að þrátt fyrir stórfelldar hreinsanir á framboðslistanum fyrir síðustu kosningar er það sami gamli D-listinn sem er kominn aftur til valda. Og hugtakið ábyrg fjármálastjórn hefur ekki enn ratað inn í nýyrðasafn hans.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst