Frábær stemning á árshátíð VSV
IMG 8067
Pétur Jóhann, Albert og Bjarni Rúnar í Höllinni. Ljósmynd/vsv.is

Árshátíð Vinnslustöðvarinnar var haldin með pompi og prakt um helgina. Í frétt á vefsíðu VSV segir að hátíðin hafi hafist með fordrykk á Háaloftinu þar sem gestir nutu samvista áður en hátíðin var formlega sett í Höllinni.

„Veislustjórar kvöldsins voru hinir óviðjafnanlegu Sveppi og Pétur Jóhann. Þeir leiddu gesti í gegnum kvöldið með léttu spjalli, húmor og sprelli, eins og þeim einum er lagið. Á milli rétta nutu hátíðargestir tónlistar og skemmtiatriða á heimsmælikvarða. Matarveislan stóð langt fram á kvöld þar sem meistarakokkurinn ​Einsi Kaldi töfraði fram glæsilega forrétti, steikarhlaðborð og eftirréttaplatta, sem hlaut mikið lof. Að lokinni formlegri dagskrá opnuðust dyr Hallarinnar fyrir almenning, og hófst þá dansleikur sem stóð fram á nótt. Húsið fylltist af gleði, söng og fjöri þar sem starfsfólk og gestir dönsuðu inn í nóttina.”

Myndasyrpu frá árshátíðinni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Yfir þúsund pysjur skráðar
Fjölmenni á opnum fundi Áfram Ísland
Kvennalið ÍBV sigraði alla sína leiki á Ragnarsmótinu
Styður lengri útivistartíma 10–12 ára barna
Þyrlupallurinn í Surtsey stækkaður
ÍBV tapaði gegn Þrótti R. á Hásteinsvelli
Stefnt að styttingu Hörgaeyrargarðs í lok september
Livey tekur við streymi Olísdeildarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.