Fram úr björtustu vonum okkar
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðisflokksins sagði í samtali við Eyjafréttir í dag að hann hafi átt von á góðri niðurstöðu úr sveitarstjórnarkosningunum í gær. �??Við erum búin að finna það síðustu átta ár, og einnig í aðdraganda þessara kosninga, að við höfum meðbyr hér í Vestmannaeyjum. Í ljósi þess átti ég von á því að niðurstaða kosninganna yrði góð en ég viðurkenni það að árangurinn nú fór fram úr vonum bjartsýnustu manna.�??
Hvernig skýrir þú þennan góða árangur?
�??�?g tel að hann helgist fyrst og fremst af tvennu. Annars vegar veit fólk fyrir hvað við stöndum. Við höfum verið með óbreyttan meirihluta í átta ár og það er fátt sem kemur á óvart. Niðurstaða kosninganna er í raun stuðningur við þau verk sem meirihlutinn hefur innt af hendi. En hins vegar er það þannig að ekkert framboð nær árangri nema að vera með mikið og gott mannaval á lista. Okkur tókst að stilla upp lista með fólki sem bæjarbúar hefur trú á.�??
Hvað tekur við núna?
�??Niðurstaða kosninganna sýnir að kjósendur eru ekki að óska eftir miklum sviptingum í rekstri bæjarins. Við förum því inn í næstu fjögur ár eins og við höfum gert síðustu átta ár, að reka bæjarfélagið á skynsaman máta, fara vel með skattpening bæjarbúa, halda þjónustustigi eins háu og við höfum gert og að gæta hagsmuna samfélagsins hér.�??
�?tlar þú að halda áfram sem bæjarstjóri?
�??Já það hefur alltaf legið fyrir. Á meðan ég segi ekki upp eða er ekki sagt upp, þá er ég bæjarstjóri.�??

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.