Fyrir Heimaey taktu skrefið með okkur
Undanfarna daga hafa borist til okkar stefnuskrár þriggja stjórnmálaafla hér í bæ. Eitt er það afl sem nú býður fram krafta sína er Fyrir Heimaey þar er á ferðinni einstaklingar sem gefa kost á sér til þeirrar samfélagsþjónustu sem framboð er í raun. Í stefnuskránni segir að það þufti kjark til að breyta og það er rétt. Við Vestmannaeyingar höfum haft kjark til að taka málin í okkar hendur og koma fram þeim breytingum sem við teljum að séu til hagsbóta fyrir okkar samfélag. �?arna er ekki verið að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Eitt okkar stærsta hagsmunamál er að bæði höfn og skip sem eiga að sinna samgöngum á milli lands og eyja séu í stakk búin til þess. Gleymum ekki flugi hér á milli sem hefur verið sinnt af mikilli elju þeirra flugfélagsmanna hjá �?rnum. �?ar má leggjast á sveif með þeim að fjölga farþegum sem vilja fljúga hér á milli. Gera þeim farþegum sem vilja hafa hér lengri dvöl það mögulegt. Hér eru góðir gisti mögluleikar og ýmis dægrastytting í boði. �?að er búið að lagfæra og gera fargjöldin hér á milli ódýrari fyrir okkur með Herjólfi . En er það nóg ? Nei undanfarið þá hefur ekki verið hægt að sigla á milli eyja og Landeyja nema á flóði þ.e. að sjávarstaða sé þannig að Herjólfur fljóti innan hafnar og komist á haf út aftur. Að þetta sé með þessum hætti í dag er að mínu viti algjölega óásættanlegt. Skip er í smíðum en höfnin látin vera og síðan á bara að grafa þegar hann lignir ! �?að verður að koma málefnum Landeyjarhafnar á dagskrá ríksistjórnarinnar og að samgönguráðherra taki af skarið og láti fara fram úttekt á málum hafnarinnar og hverju þurfi að breyta til að Herjólfur og nýja skipið geti siglt þarna inn við sæmilegustu aðstæður. �?g tel að það þurfi miklu stærri aðgerðir en að setja upp einhverja dælur að hvorn garð eins og menn láta sig dreyma um. Atlantshafið lætur ekki að sér hæða það hefur lamið suðurströndina og fært til sand og strönduð fley um aldir og kemur til með að gera að áfram. Búseta hér til framtíðar byggir á góðum og öruggum samgöngum, rekkstur fyrirtækja byggir líka á því að hingað komist efni og afurðir fari til lands. Ungt fólk sem hér ætlar að byggja hér og búa gerir þá kröfu að samgöngur séu tryggar hér á milli og á skynsamlegu verði. �?g vona að frambjóðendur H listans fái góða kosningu og að kjarkur fylgi málum til breytinga. Sjálfstæður maður �?lafur Lárusson kennir hegurð við GRV.
�?lafur Lárusson

Nýjustu fréttir

Goslok: dagskrá föstudags
Fyrsta tölublað Eyjafrétta sem kemur eingöngu út á vefnum
Þórir Baldursson í Eldheimum í kvöld
Umferðin tók vel við sér í júní
Heldur flatur Heimaklettur og fleiri fletir í Pálsstofu á Goslokahátið
Samfélag í sókn þarf samgöngur sem duga
Ábyrgð í verki: Vestmannaeyjabær styður við verðbólgumarkmiðið
Bæjarstjórn fundar í dag – samgöngur, lögreglumál og vinnuskólinn á dagskrá

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.