Fyrsti fundarstaður fíflalúsar á Suðurlandi
Surtsey varð sextug á síðasta ári. Ljósmynd/aðsend

Árleg rannsóknarferð til líffræðirannsókna í Surtsey var farin á vegum Náttúrustofnun Íslands á dögunum. Farið var út í eynna á mánudag og lýkur ferðinni í dag.

Mbl.is greindi fyrst frá.

Tiltölulega nýr landnemi

Í samtali við Morgunblaðið segir Olga Kolbrún Vilmundardóttir, líffræðingur sem leiðir hóp vísindamanna í Surtsey, að í ár hafi þar í fyrsta sinn fundist fíflalús. Fíflalús sé tiltölulega nýr landnemi á Íslandi sem hefur áður ekki fundist á Suðurlandi.

Skríða í hersingum upp húsveggi

„Á seinni árum hefur hún breiðst út óðfluga á landsbyggðinni og henni fjölgað sums staðar ótæpilega. Á Austurlandi hefur fíflalús elfst með ólíkindum á örfáum árum en þaðan hafa fyrirspurnir borist í auknum mæli á síðustu árum um þessa svörtu lús sem skríður í hersingum upp húsveggi.“ seg­ir á vef Náttúrufræðistofnun Íslands.

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.