Gengið vel hjá Bergi og Vestmannaey

Gengið hefur vel hjá hjá Vestmannaeyjarskipunum Bergi VE og Vestmannaey VE að undanförnu. Þau hafa staldrað stutt við á miðunum og komið að landi með fullfermi. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra útgerðanna. “Segja má að þetta hafi gengið eins og í sögu og það er gjarnan landað fullfermi annan hvern dag. Skipin fóru til dæmis út eftir löndun sl. fimmtudag og þau komu til löndunar á laugardagsmorgun. Farið var út eftir löndunina þá og komið á ný til löndunar í morgun. Síðan er stefnt að löndun á ný á miðvikudag. Þetta gengur svona fyrir sig og það eru allir glaðir. Veitt hefur verið í nágrenni Eyjanna, mest í Háfadýpi og á Pétursey. Aflinn á laugardag var mest ýsa og þorskur en í dag eru skipin með ýsu, þorsk og ufsa. Við reynum að keyra á ýsu og ufsa eins og við getum en þorskurinn kemur alltaf með. Þetta er vertíðartími og þrusugangur í þessu,” segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.