Gistinætur á hótelum hér á landi í október voru 103.700 en voru 108.800 í sama mánuði árið 2007, sem er því tæplega 5% samdráttur milli ára.
Á Höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 83.100 í 76.400 eða um 8%. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum úr 6.400 í 5.100 eða um 20% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum um 1%, úr 7.400 í 7.300.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst