Góð heilsa ekki sjálfgefin

Í fimm ár hefur Eyjamönnum 60 ára og eldri boðist að taka þátt í heilsueflingarverkefninu,  Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum á vegum Janusar heilsueflingar sem  hefur sérhæft sig í heilsueflingu 60 ára og eldri. Að baki  liggja niðurstöður doktorsrannsóknar Janusar Guðlaugssonar. Markmiðið er að koma til móts við fólk sem vill efla heilsu sína og lífsgæði þrátt fyrir hækkandi aldur.

„Verkefnið Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum, leið að farsælum efri árum var innleitt í Eyjum í samvinnu við sveitarfélagið haustið 2019. Um leið buðum við starfsfólki Hraunbúða upp á aðstoð fyrir bæði íbúa og fólk í dagdvöl. Gengur  samvinnan einstaklega vel. Nálgun þeirra er sambærileg okkar. Við notum mest teygjur fyrir styrktarþjálfun og létt lóð auk þess sem við nýtum gangana til daglegrar hreyfingar,“ segir Janus sem er ánægður með samstarfið við Vestmannaeyjabæ.

Í upphafi voru þátttakendur um 80 og sú tala hefur haldist nokkurn veginn. „Mest  voru 120 hjá okkur en markmiðið er að gera þau fær um að sinna eigin heilsu og velferð. Um leið styðja þau í athöfum daglegs lífs og  að þau geti búið lengur heima. Þetta rímar vel við sýn sveitarfélagsins. Hagnaðurinn er beggja, bætt lífsgæði, vellíðan og betri heilsa eldri íbúa. Um leið verða útgjöld  sveitarfélagsins minni. Verkefnið er því ávinningur fyrir báða aðila og skynsamleg fjárfesting beggja. Rétt er að geta þess að við erum einstaklega heppin með okkar heilsuþjálfara og leiðtoga í Eyjum sem er undir dyggri stjórn Ólu Heiðu,“ segir Janus.

Ítarlegt viðtal við Janus má lesa í nýjasta tölublaði Eyjafrétta sem kom út í dag. Hægt er að kaupa blaðið á Kletti og í Tvistinum. Auk umfjöllunnar um heislueflingu eldri borgara eru umfjallanir um útskriftir Framhaldsskólans og GRV. Þá er sjómannadagshelgin gerð upp, fjallað um forvitnilega kafbátsferð og sandælingu við Landeyjahöfn svo eitthvað sé nefnt.

forsida_eyjafrettir_11tbl

Nýjustu fréttir

Eyjamaðurinn: Elís Þór
Miðflokkurinn býður fram í Eyjum
Kyrrðarbæn í dag
Tveir handteknir í tengslum við andlát
Vera Lífsgæðasetur og LifeLine Health hefja samstarf
Andrea Jacobsen til liðs við ÍBV
Tafir vegna bilunar
Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.