Góðgerðarsamtökin Ladies Circle - Eins og einn stór vinahópur

Ladies Circle (LC) eru alþjóðleg góðgerðar- og vináttusamtök með tæplega 1100 klúbba starfandi á tæplega 140 svæðum um allan heim og eru fleiri en 11.000 virkar klúbbkonur í samtökunum í dag. Í Ladies Circle fá konur tækifæri til að efla sjálfstæði sitt, auka víðsýni og umburðarlyndi og eiga frábærar stundir með öðrum konum. 


Efri Röð: Erna Georgsdóttir, Heba Dögg Jónsdóttir, Berglind Sigvardsdóttir, Soffía Marý Másdóttir, Marsibil Sara Pálmadóttir, Linda Óskarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Heba Rún Þórðardóttir, Sara Björg Ágústsdóttir og Lísa Margrét Þorvaldsdóttir. Neðri röð: NInga Kristín Pétursdóttir, Sandra Sif Sigvardsdóttir, Bryndís Jónsdóttir og Sara Dís Hafþórsdóttir. 

Sandra Sif Sigvardsdóttir er formaður LC í Vestmannaeyjum. Verkefni hennar er að setja upp fundi fyrir starfsárið og halda utan um formlegheitin. Sandra segir að hópurinn í Eyjum sé eins fjölbreyttur og hann er frábær. Ladies Circle er fyrir konur á aldrinum 18 til 45 ára. Aðild fá konur sem bornar eru upp af núverandi eða fyrrverandi félaga samtakanna. Einnig getur kona sent inn ósk um inngöngu í klúbbinn og er þá borin tillaga um viðkomandi á fundi næst þegar klúbburinn hyggst fjölga. 
Fyrst og fremst eru samtökin góðgerðarsamtök en í heildina eru þau miklu meira en það. 

Ladies Circle er partur af Round Table fjölskyldunni sem samanstendur af Round Table International, Old Tablers, Ladies Circle International og Agora og vinnum við náið með þessum samtökum hér á Íslandi.

Klúbburinn hvetur klúbbkonur sínar að taka þátt í góðgerðarverkefni bókasafnsins og foreldramorgna og gefa jólagjöf undir tréð í Einarsstofu. Einnig voru klúbbkonur hvattar til að kaupa Lífgjöf í Kubuneh í stað pakkaskipta innan klúbbsins í ár….

Greinina í heild sinni má lesa í 23.tbl Eyjafrétta.

Nýjustu fréttir

Vorsýning fimleikafélagsins í dag
Sandra besti sóknarmaður Olís deildar kvenna
Lífríki íslenskra hafna í hættu?
Fimleikafélagið Rán tók þátt í Vormóti Gróttu
Samningi Filip Stuperavic rift við ÍBV
Eyjamenn áhyggjufullir vegna næsta vetrar
Eyjamenn fjölmenntu á samgöngufund Vegagerðarinnar
Ný bæjarstjórn tekur til starfa í dag – fundurinn í beinni

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.