Um síðustu helgi 1.-2. mars lauk seinni hluta Íslandsmóti skákfélaga í Rimaskóla í Reykjavík, en fyrri hlutinn fór fram í nóvember síðastliðnum.
Taflfélag Vestmannaeyja sendi tvær sex manna sveitir á mótið, aðra í 3ju deild en hina í fjórðu deild. Alls tóku 17 keppendur frá TV þátt í keppninni um helgina. Sveit TV endaði í öðru sæti af fjórtán sveitum í 3. deild og teflir því í 2. deild næsta haust.
Alls voru tefldar sjö umferðir og kom þessi góði árangur nokkuð á óvart, því eftir fyrri hlutann var sveit TV í 7. sæti. Keppnin var mjög jöfn um 2. sætið og var sveit TV ½ vinningi fyrir ofan sveit Skagamanna þegar upp var staðið. Í fjórðu deild gekk sveit TV einnig vel og endaði í 5. sæti af 14.
Sveitir TV eru skipaðar félögum í TV, búsettum í Eyjum eða uppi á landi. Á fyrsta tefldi Ægir Páll Friðbertsson og aðrir í liðinum voru, Nökkvi Sverrisson, Sigurjón Þorkelsson, Sverrir Unnarsson, Kristófer Gautason, Lúðvík Bergvinsson, Aron Ellert Þorsteinsson. Alexander Gautason, Hallgrímur Steinsson, Arnar Sigurmundsson, Andri Hrólfsson, Ólafur Hermannsson, Páll J. Ammendrup, Páll Ammendrup Ólafsson, Bjartur Týr Ólafsson og Sindri Guðjónsson. Tefldi hver um sig ýmist 1, 2 eða 3 skákir um helgina.
Liðstjórar voru Arnar Sigurmundsson í 3. deild og Ólafur Hermannsson í 4. deild. Að sögn Arnars formanns TV, gerir þessi góðu árangur enn ríkari kröfur til næsta keppnistímabils því sveitir í 2. deild á Íslandsmóti skákfélaga eru töluvert sterkari en í 3. deild. Á sama hátt verður spennandi verkefni að koma sveit TV í fjórðu deild upp í þriðju deild að ári.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.