Grímur kokkur og Geir Jón gera upp Fiskidaginn mikla
Grímur kokkur Gíslason og Geir Jón �?órisson eru í sístækkandi hópi Eyjamanna sem láta sjá sig árlega á Fiskideginum mikla á Dalvík. Grímur og starfsmenn hans buðu gestum að smakka á framleiðslu sinni og mokuðu hreinlega út plokkfiski og fiski í raspi. Geir Jón var ræðumaður í Dalvíkurkirkju við Fiskidagsmessuna, kraftmikill og leikandi léttur í predikunarstólnum. Honum var afar vel tekið.
Salan tekur kipp um allt land eftir Fiskidaginn mikla
�??�?etta er ellefti Fiskidagurinn okkar og við tökum örugglega þátt í honum næstu árin og áratugina! Dalvíkingar eru afskaplega gestrisið og hlýlegt fólk. �?arna hef ég eignast marga vini og óhætt að segja að Eyjamenn og Dalvíkingar nái vel saman. �?eir eru líkir um margt,�?? segir Grímur kokkur Gíslason.
�??Okkur var sérlega vel tekið og höfðum vart undan að gefa plokkfisk og þorskstangir í raspi á báða bóga í sex klukkutíma samfleytt.
Áhrifin láta ekki á sér standa, vörurnar taka sölukipp í verslunum um land allt vikurnar eftir Fiskidaginn mikla og við þurfum að fjölga starfsfólki í framleiðslunni. �?að segir manni líka að gestirnir eru ekki einungis Norðlendingar heldur tugir þúsunda manna víðs vegar að af landinu.
Betra tækifæri fáum við hvergi til að kynna það sem við erum að gera í milliliðalausu sambandi við landsmenn. Við erum þreytt en glöð að Fiskidegi loknum og alltaf er þetta jafn skemmtilegt og gefandi.
Reyndar er bókstaflega allt tengt Fiskidaginn mikla jákvætt. Meira að segja veðrið er undantekningarlaust gott.
�?jóðfélagsumræða um sjávarútveginn er á köflum ekki beinlínis uppbyggileg en stemningin á Dalvík og stuðningur allra þessara fyrirtækja við Fiskidaginn mikla er jákvætt innlegg sem vonandi hefur góð áhrif á þjóðarsálina.�??
Andrúmsloftið svipað á Dalvík og í Eyjum
�??�?g fór fyrst á Fiskidaginn mikla 2006, þá yfirlögregluþjónn í Reykjavík, og skynjaði þá að andrúmsloftið á Dalvík var öðruvísi en ég hafði kynnst annars staðar á útisamkomum og bæjarhátíðum. Mér bara létti og ég endurnýjaði kraftana andlega og líkamlega! Eftir það hef ég sótt Dalvíkinga heim nær árlega og sé að margir aðrir Eyjamenn eru orðnir fastagestir Fiskidagsins líka,�?? segir Geir Jón �?órisson.
�??Á Dalvík skynja ég svipað andrúmsloft og í Eyjum þegar ég flutti þangað fyrst 1974 og aftur þegar ég sneri þangað á ný eftir tveggja áratuga búsetu í höfuðborginni í millitíðinni. Báðir eru bæirnir veiðimannasamfélög vinnandi og skapandi fólks og margt sameiginlegt með samfélögunum þar.
Fiskidagurinn er alveg sér á báti og menn verða að upplifa hann til að trúa því sem það heyrir frá okkur gestunum. Kærleikur, samhugur, samheldni og gjafmildi einkenna bæjarbraginn og andrúmsloftið. Dalvíkingar taka okkur gestum fagnandi og við erum innilega velkomin í hús þeirra og garða.
�?g sagði í Dalvíkurkirkju og meina hvert orð: Almættið verðlaunar þetta gjafmilda fólk með góðviðri ár eftir ár þegar mest á ríður. Alveg sama hve mikið rignir og vindar gnauða fyrir Fiskidagshelgina, alltaf göngum við að blíðviðri á sjálfum Fiskideginum mikla!�??

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.