Gular viðvaranir á sunnanverðu landinu
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir vegna veðurs á Suðurlandi og Suðausturlandi.

Á Suðurlandi tekur viðvörunin gildi í dag kl. 13:00 og gildir hún til kl. 01:00 í nótt. Í viðvörunarorðum segir: Austan allhvass eða hvass vindur, 15-20 m/s, undir Eyjafjöllum. Varasamar aðstæður fyrir vegfarendur með aftanívagna eða ökutæki sem taka á sig mikinn vind.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:
Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 við norður- og suðausturströndina. Dálítil rigning eða súld, en stöku skúr vestantil. Hiti frá 7 stigum við norðausturströndina, upp í 16 stig á Suðvesturlandi.

Á mánudag:
Norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 við norður- og austurströndina. Rigning eða súld, en dálitlar skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Vesturlandi.

Á þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt og væta af og til, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 12 stig.

Á miðvikudag:
Norðaustlæg átt og dálítil rigning eða súld, en skýjað með köflum og þurrt að kalla norðantil. Hiti 7 til 15 stig, svalast við austurströndina.

Á fimmtudag:
Austan- og norðaustanátt og rigning með köflum, en bætir í úrkomu er líður á daginn. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Útlit fyrir ákveðna norðaustanátt með rigningu, en úrkomulítið suðvestanlands.
Spá gerð: 20.06.2025 21:07. Gildir til: 27.06.2025 12:00.

Nánar um veðrið.

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.