Hægt er að sækja um lóðir fyrir hvítu tjöldin í dag

Sækja þarf um lóð á dalurinn.is, skrá sig þar inn með netfangi og lykilorði, ef þú manst ekki lykilorðið þá sækir þú um nýtt lykilorð með því að ýta á “Gleymt lykilorð”. Ef upp kemur að netfangið sé ekki til, þá stofnar þú nýjan aðgang.

Mikilvægt er að allir reitir séu fylltir út svo að umsókn sé gild. Nauðsynlegt er að vita nákvæma breidd á tjaldinu áður en umsókn er fyllt út.

Fyrir hvern meter sem sótt er um verður tekin 10.000 kr. heimild sem verður bakfærð þegar búið er að setja niður súlurnar.

Mánudaginn 21. júlí kl. 10:00 Opnað fyrir umsóknir

Miðvikudaginn 23. júlí kl. 10:00 Lokað fyrir umsóknir

26.-27. júlí Staðfesta þarf úthlutun

Mánudaginn 28. júlí kl. 10:00 Birtar nákvæmar staðsetningar á lóðum til allra þeirra sem sóttu um á réttan hátt í gegnum dalurinn.is

  • Sótt er um lóð inn á dalurinn.is – skrá sig þar inn með netfangi og lykilorði
  • Búið er að búa til forrit sem sér um úthlutunina, en eins og undanfarin ár þá fá sjálfboðaliðar Þjóðhátíðar fyrst úthlutaðar lóðir áður en það kemur að öðrum gestum
  • Til að sækja um lóð þarftu að vita breiddina á tjaldinu þlnu, hún þarf að vera 100% rétt svo að tjöldin raðist sem best.
  • Þegar sótt er um lóð:
    • Þarftu að velja götu
    • Velja hvort þú viljir vera hægra eða vinstra megin
    • Getur hakað við að vera fremsta tjald
    • Fylla þarf út 1. 2. og 3. val
  • Hægt er að sækja um allt að 12 metrum
  • Til að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu þarf að gefa upp kortanúmer þegar sótt er um lóð:
    • Tekin er frá heimild á kortinu 10.000 kr. fyrir hvern meter sem sótt er um
    • Heimildinni er aflétt þegar búið er að setja niður súlurnar
    • Ef umsækjandi mætir ekki með súlurnar í dalinn þá verður greiðslan innheimt á kortinu

Þegar búið er að úthluta lóðum þá segir númer lóðar ekki til um númer tjalds í röðinni, á einni lóð geta verið fleiri en eitt tjald.

 

Nýjustu fréttir

Kallað eftir hugmyndum fyrir Goslokahátíð 2026
Ein ferð í Landeyjahöfn
Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.