Háspenna á lokamínútunum hjá konunum
Leikmannahópur ÍBV er blanda af ungum leikmönnum og reyndari.

Eyjakonur máttu sætta sig við jafntefli 22:22 þegar þær mættu ÍR á útivelli í kvöld í þriðju umferð Olísdeilarinnar. Er ÍBV með þrjú stig eftir fyrstu þrjá leikina og í þriðja sæti eins og er.

ÍR komst í 7:3 í byrjun leiks en staðan í hálfleik var 12:12 og var jafnræði með liðunum í seinni hálfleik. Birna Berg brenndi af víti undir lok leiks og ÍR jafnaði og varð jafntefli niðurstaðan.

Birna Berg var langmarkahæst Eyjakvenna, skoraði 11 mörk, Sunna 5, Birna María 5 og Brit­ney Cots 1. Marta stóð fyrir sínu í markinu og varði 13 skot.

Nýjustu fréttir

Ræsið lestrarvélarnar! Sumarlestur Bókasafnsins
Boða til opins fundar um stöðu og framtíð Landeyjahafnar
Mörkunum rigndi inn þegar ÍBV náði í sinn fyrsta sigur í sumar
Díana Dögg og Andrea þýskir meistarar
Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.