Heiðar Smári á leið til Svíþjóðar í ameríska fótboltann
Mynd: Facebook/Einherjar
Heiðar Smári í fullum skrúða ásamt unnustunni Freydísi Rut. Mynd: Facebook/Heiðar Smári Ingimarsson

Það er ekki um auðugan garð að gresja þegar kemur að leikmönnum í amerískum fótbolta á Íslandi. Enda, að mér vitanlegum, aðeins eitt lið sem æfir þá íþrótt á Íslandi, Einherji. Og var það stofnað árið 2015.

Á meðal liðsmanna Einherja er Eyjamaðurinn Heiðar Smári Ingimarsson. Til að byrja með spiluðu leikmenn liðsins einungis innbyrðis en árið 2016 var ákveðið að taka næsta skref og spila leiki við erlend lið. „Við spiluðum á móti Asane Seahawks fyrst í mars 2016 og unnum þá 50:0 sigur. Síðan þá höfum við spilað í heildina fimm leiki og unnið þrjá af þeim,” sagði Heiðar í viðtali við Eyjafréttir í nóvember 2017 og hefur eflaust eitthvað bæst við leikjafjöldan síðan þá.

Nú hefur Heiðar tekið áhugann á ameríska fótboltanum skrefinu lengra og hefur hafið æfingar með liði Uppsala 86ers í Svíþjóð. „Við mættum Einherja í æfingaleik síðasta vor og sáum Heiðar leika þar,” segir Johan Sedin þjálfari Uppsala 86ers á heimasíðu liðsins. „Hann hefur mikinn sprengikraft og er snöggur fyrir mann af hans stærð. Hann á eftir að koma mörgum á óvart.”

„Ég hef aðeins leikið níu leiki á mínum ferli en hef hlotið góða þjálfun frá öllum amerísku þjálfurunum sem hafa heimsótt okkur til Íslands,” segir Heiðar. „Að fá tækifæri til að koma til Svíþjóðar og bera mig saman við leikmenn í efstu deild þar er draumur að rætast.”

 

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.