Vegagerðin og Eimskip hafa sameiginlega ákveðið að bæta við aukaferðum Herjólfs í sumar og siglir Herjólfur nú 37 ferðir á viku í reglulegri áætlun út sumarið.
Eins og kynnt var í júní og sett í áætlun hefur Herjólfur siglt 6 ferðir á dag föstudag og sunnudaga sl. vikur og von á fleiri ferðum.
Nú bætum við enn í og setjum í 5. ferðina á þriðjudögum. Eftir það siglir Herjólfur 37 ferðir á viku. Aldrei áður hafa fleiri ferðir verið í reglulegri áætlun Herjólfs milli lands og Eyja.
Áætlun Herjólfs verður því sem hér segir fram til 15. sept. 2015.
